DNG færavindur
- leiðandi í þróun handfæraveiða
Færavindur DNG hafa markað djúp spor í framþróun handfæraveiða síðustu áratugi, eða frá því að fyrsta DNG færavindan kom á markað árið 1985. Fyrsta C6000i vindan kom svo á markað árið 1995 og hefur verið grunnurinn að stöðugum nýjungum og betrumbótum. R1 færavindan er afrakstur áratuga þróunar, rannsókna og hönnunar með það að markmiði að skapa skilvirkustu færavinduna á markaðnum. Hún er búin Wi-Fi samskiptum, reglulegum hugbúnaðaruppfærslum og nákvæmri dýptargreiningu sem tryggir áreiðanleika og afköst. Þess vegna er R1 færavindan í dag leiðandi í greininni og traust tæki fyrir sjómenn um allan heim.

Afl, ending og umhverfisávinningur
R1 færavindan skilar meiri afköstum með minni orkunotkun og er orðin nánast hljóðlaus. Hún er vatnsheld og smíðuð úr saltþolnu áli og ryðfríu stáli sem tryggir langan endingartíma við erfiðustu aðstæðum. Veiðistillingar fyrir þorsk, ufsa, makríl og fleiri tegundir eru fyrirfram innbyggðar og notandi getur einnig hannað sínar eigin styllingar.
Vindan slakar línu, finnur botninn og keipir þar til fiskur bítur á. Þegar fiskurinn bítur á stöðvast hún og dregur hann sjálfvirkt inn. Mengun og tap á búnaði er hverfandi og áhrif á vistkerfi sjávar eru lítil sem engin.

R1 færavindan sameinar hámarksafköst og einfaldleika í notkun. Hún vinnur bæði á 12V og 24V rafkerfum með lágmarks orkunotkun
og skilar samt sem áður miklum afköstum.
Hún er vatnsheld, með Wi-Fi samskiptum á milli vindanna og háskerpuskjá sem veitir notandanum nákvæma yfirsýn. Með innbyggðum veiðistillingum fyrir vinsælar fisktegundir og öflugt
fiskleitarkerfi verður veiðin einfaldari og markvissari.
Notendur geta jafnframt sett inn sínar eigin stillingar og sérsniðið vinduna að sínum veiðiaðferðum.
Hljóðlaus hönnun og traust bygging gera hana að kjörnum búnaði við krefjandi aðstæður á sjó.
Tæknilegir eiginleikar
í fremstu röð
Með R1 Manager forritinu fæst fullkomin yfirsýn og stjórn á öllum færavindum um borð, beint úr stýrishúsinu. Hver vinda er auðkennd með raðnúmeri en notendur geta einnig endurskýrt vindur eftir tengingu til að auðvelda notkun.
Allar vindur sem tengdar eru sama neti birtast í forritinu, þar sem einfalt er að fylgjast með stöðu þeirra og stjórna stillingum. Ef vandamál kemur upp er auðvelt að endurræsa tengingu eða uppfæra hugbúnað vindanna beint í gegnum forritið. Þannig verður stjórnunin bæði þægileg og notendavæn lausn fyrir sjómenn.