Handstöðvar/útstöðvar

BOONS FIS framleiðir breiða línu af handstöðvum hvort sem það er fyrir miðstýrð þvottakerfi eða þar sem efnin eru geymd á hverri stöð fyrir sig.


DSW  – Handstöðvarnar eru fyrir kerfi þar sem sápan er geymd í brúsum við stöðina sjálfa og jektor inni í stöðinni er notaður til að stilla styrk efnablöndunar. Hægt er að fá stöðvarnar í 5 mismunandi útfærslu. Fyrirtækið býður einnig upp á læsta, ryðfría skápa utan um efnin, sem notuð eru hverju sinni, til að tryggja öryggi efnanna. 


Handstöðvar - miðstýrð kerfi

CS – Handstöðvarnar er fyrir miðstýrð kerfi á stöðum þar sem lagnaloft eru til staðar. Stöðvarnar eru einstaklega notendavænar og litlar um sig.


Í þessari útfærslu hafa allir lokar verið teknir úr stöðinni sjálfri og og færðir uppá lagnaloft. Með því minnkar stöðin sjálf verulega og lokarnir komnir í þurrara og betra umhverfi sem lengir líftíma þeirra. CS stöðvarnar koma í 4 útgáfum fyrir allt að fjögur efni.


Þar sem lagnaloft er ekki til staðar koma CS - handstöðvarnar einnig í þeirri útfærslu þar sem lokarnir eru í stöðinni sjálfri, í lokuðu ryðfríu húsi. Húsin eru hönnuð til að tryggja hreinlæti. 


Stöðvarnar koma í sömu 4 útfærslum og þær minni. 


Bæklingar