31. mars 2026
Ánægður með nýju R1 vindurnar

Nýr búnaður getur sparað dýran tíma á sjó

Sverrir Mjófjörð Gunnarsson, trillusjómaður í Ólafsfirði, er einn þeirra sem skipt hafa alfarið yfir í nýju R1 færavinduna frá DNG og er með fjórar slíkar um borð. Sverrir gerir út Ásdísi ÓF 9 og hefur róið í strandveiði frá upphafi þess kerfis jafnframt því að fiska eigin kvóta á haustin, veturna og vorin. Sverrir er staðfastur í þeirri skoðun sinni að framfarir felist alltaf í nýrri tækni og það eigi við um þau kynslóðaskipti í framleiðslu DNG þegar R1 vindan hefur nú tekið við af C6000 vindunni sem verið hefur flaggskip í framleiðslu fyrirtækisins frá upphafi. 


Íslenska stjórnborðið mikill kostur

„Einn af stórum kostum R1 vindunnar er að allt stjórnborð hennar er á íslensku og þannig eiga allir sem nota vinduna auðvelt með að stilla virkni hennar nákvæmlega eins og þeim hentar best,“ segir Sverrir. 

„Ég finn talsverðan mun á C6000 vindunni og nýju R1 vindunni. Þær vinna með ólíkum hætti en við trillukarlar erum auðvitað sérvitrir og höfum misjafnar skoðanir á því hvaða breytingar eru góðar og hverjar ekki. Mín skoðun er sú að það þarf alltaf að verða framþróun eins og er með R1 vindunni. Fyrir mig tók tók smá tíma að læra upp á nýtt að vinna með stillingarmöguleikana sem eru í nýju vindunni enda kunni maður á gömlu vinduna upp á 10. En síðan hafa vindurnar verið eins og hugur manns. Þetta eru góðar vindur sem hafa komið mjög vel út hjá mér. Þær bjóða upp á mikla stillingarmöguleika og eru aðgengilegar,“ segir Sverrir. 


Getur verið dýrkeypt að treysta á gamlan búnað

„Í vindum eins og allri annarri tækniframleiðslu þá gerist aldrei neitt ef menn taka ekki þátt og kaupa nýja tækni. Á því byggist þróunin,“ segir Sverrir sem verið hefur viðloðandi smábátaútgerð frá unga aldri. 

„Margir tala um að það sé dýrt að fjárfesta í nýjum rúllum en þegar ég man fyrst eftir mér í kringum þessa smábátaútgerð þá kostaði ný vinda sem nemur einu tonni af fiski. Staðan er nákvæmlega sú sama miðað við fiskverð eins og það er í dag. Ný vinda er því ekki hlutfallslega dýrari en hún hefur alltaf verið. Allur nýr búnaður kostar en það er líka dýrt að vera með gamlar og bilanagjarnar vindur um borð. Hver dagur frá veiðum vegna bilana, t.d. í strandveiðinni, er mjög dýrkeyptur.“


Auðvelt að anna fjórum vindum

Sverrir er með fjórar vindur á Ásdísi ÓF og segist auðveldlega anna þeim einn. 

„Ein af nýjungunum með R1 vindunum er að nú eru þær samtengjanlegar á WiFi með router um borð. Þannig er hægt að stilla vindurnar í einu veiðikerfi á þann hátt að ef t.d. tvær vindur eru uppi þá hífa þær sem eru í sjó að keypa ekki upp fyrr en búið er að slaka hinum tveimur niður. Á þennan hátt er hægt að jafna vinnunni. Kostirnir við þessar nýju vindur eru margir,“ segir Sverrir. 

Aðrar fréttir

Eftir Hilmar Guðmundsson 11. mars 2026
Eina klassaða flotkví landsins
25. febrúar 2026
Gamla færavindan sem greiðsla upp í nýja!
30. janúar 2026
Farþegaskip til sölu – IMO 9015175 (áður Arctic Circle) Slippurinn Akureyri kynnir nú til sölu farþegaskip sem hefur gengið í gegnum gagngerar endurbætur og hentar einstaklega vel til farþegaflutninga og hvalaskoðunar. • 150 farþegar (stækkanlegt í 200) • Hámarkshraði 26–28 hnútar • Fullbúið og tilbúið til reksturs strax • Afhending á Akureyri
Eftir Hilmar Guðmundsson 22. desember 2025
Slippurinn Akureyri sendir starfsfólki, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og heillaríkt komandi ár, með þökkum fyrir ánægjulega samvinnu á liðnu ári.
8. desember 2025
Síðastliðinn föstudag, 5. desember, bauð DNG færavindur smábátaeigendum á Norðurlandi í heimsókn í húsakynni fyrirtækisins á Akureyri. Viðburðurinn var skipulagður í samstarfi við Klett, félag smábátaeigenda á Norðurlandi eystra, og tókst afar vel. Aðsókn var mjög góð og var gestum fagnað með kynningu á framleiðslu, tækninýjungum og framtíðarþróun færavinda. Heimsóknargestir komu víða að af Norðurlandi og einnig frá systurfélögum bæði austan og vestan við Eyjafjörð. Sjómenn, bátseigendur og áhugafólk um tækni fengu tækifæri til að fylgjast með hvernig vindurnar eru smíðaðar, ræða við starfsfólk og skoða það sem er nýjast á markaðnum. Sérstök áhersla var lögð á DNG R1 vinduna sem hefur notið mikillar velgengni árið 2025. Gestir fengu að prófa vinduna, stilla hana og spyrja spurninga um virkni og eiginleika. R1 hefur slegið í gegn fyrir einstaklega gott fisknæmi, sem hefur gert hana að vinsælu vali meðal smábátaeigenda. Viðburðurinn reyndist afar árangursríkur og stefnt er að því að endurtaka hann. Þá vonumst við einnig til að geta staðið fyrir sambærilegum viðburðum í nánustu framtíð fyrir smábátafélög víðar um landið. Daði Tryggvason, verkefnastjóri DNG færavinda, var mjög ánægður með viðtökurnar: „Það er okkur alltaf ánægjulegt að fá sjómenn og bátseigendur til okkar. Umræður dagsins voru frábærar og við fengum bæði gagnlegar ábendingar og mikla hvatningu. Þetta samstarf er lykilatriði í áframhaldandi þróun vörunnar.“ Bjarni Reykjalín Magnússon, formaður Kletts, þakkaði fyrir góðar móttökur og lagði áherslu á mikilvægi þess að félagið geti boðið félagsmönnum sínum upp á svona fræðslu og kynningar. Hann sagði slíka viðburði efla tengsl milli framleiðenda og notenda og styðja við öfluga smábátaútgerð á svæðinu. Heimsóknin endaði á léttum veitingum og lifandi umræðum um vertíðina fram undan og framtíðarþróun í færabúnaði. Ljóst er að áhugi er mikill – og DNG færavindur heldur áfram að leiða veginn í nýsköpun fyrir íslenska sjómenn.
7. nóvember 2025
Í þriðja sinn í röð stendur Velferðarsjóður Eyjafjarðar fyrir sölu á Velferðarstjörnunni, í samstarfi við Glerártorg og Slippinn Akureyri. Nýtt útlit stjörnunnar fyrir jólin 2025 er hannað af Elvu Ýr Kristjánsdóttur og Kristínu Önnu Kristjánsdóttur, verkefnastjórum markaðsmála á Glerártorgi, og framleitt og styrkt af Slippnum Akureyri líkt og undanfarin ár.  Sala Velferðarstjörnunnar hefst laugardaginn 8. nóvember kl. 13 á Glerártorgi og er mikilvægur hluti af fjáröflun sjóðsins. Allir sem koma að verkefninu gefa vinnu sína og allur ágóði rennur óskiptur til efnaminni einstaklinga og fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu. Velferðarstjarnan verður í sölu fram að jólum hjá Lindex og Heimilistæki/Tölvulistinn/Kúnígúnd á Glerártorgi. „Velferðarstjarnan er fallegt og merkingarbært jólaskraut – tákn samstöðu og kærleika í aðdraganda jólanna,“ segir Guðný Jóna Þorsteinsdóttir, ráðgjafi sjóðsins. Áætlað er að ný hönnun stjörnunnar verði kynnt á hverju ári, sem eykur safngildi hennar fyrir þá sem safna henni ár frá ári. Um Velferðarsjóð Eyjafjarðar Velferðarsjóður Eyjafjarðar er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð, sem frá árinu 2013 hafa unnið saman að því að styðja einstaklinga og fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standa höllum fæti. Þörf fyrir aðstoð hefur aukist verulega á undanförnum árum. Um jólin 2024 bárust yfir 500 umsóknir, og svipaðs fjölda er að vænta í ár. „Okkur hefði ekki tekist þetta án velvilja Glerártorgs og starfsmanna Slippsins, sem leggja málefninu lið með ómetanlegu framlagi. Við hvetjum íbúa svæðisins til að kaupa stjörnuna og sýna þannig samstöðu og hlýju í aðdraganda jólanna,“ segir Kristín Björk Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Velferðarsjóðs Eyjafjarðar. Velferðarsjóðurinn starfar allt árið með það að markmiði að styðja efnaminni einstaklinga og fjölskyldur. Allur stuðningur fer óskiptur í kaup á gjafakortum í matvöruverslunum, sem afhent eru þeim sem þurfa á hjálp að halda. Þeir sem vilja leggja verkefninu lið geta sent tölvupóst á jolaadstod@gmail.com eða lagt inn á reikning 0302-26-003533 .
24. september 2025
Glæsilegi togarinn Guðmundur í Nesi við Slippinn Akureyri þar sem unnið er að reglubundnu viðhaldi.
12. september 2025
Ármann Guðmundsson, þjónustustjóri hjá DNG Færavindum, kynnir nýju DNG R1 færavinduna á bás fyrirtækisins í Laugardalshöll.
11. september 2025
Sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo 2025 stendur nú yfir í Laugardalshöll eftir að hafa verið sett í gær, og lýkur henni á morgun, föstudag. Slippurinn DNG er meðal þátttakenda og kynnir þar fjögur fyrirtækjasvið sín: Skipaþjónustu, DNG vinnslubúnað, DNG færavindur og Fiskeldi & iðnað. „Aðsókn á básinn okkar hefur verið mjög mikil,“ segir Hilmar Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Slippurinn DNG. „Þetta er frábær vettvangur til að ræða málin við bæði núverandi og framtíðar viðskiptavini.“ Hilmar bendir á að áskoranir og tækifæri í viðskiptaumhverfinu séu alltaf til staðar: „Þá er mikilvægt að leita leiða til að auka hagkvæmni í rekstrinum — og þar koma hinar ýmsu lausnir sem við hjá Slippurinn DNG vinnum að í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar,“ segir hann.  Sýningin hefur hlotið góðar viðtökur meðal fagaðila í sjávarútvegi og veitir fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna nýjungar og styrkja tengsl innan greinarinnar.
4. september 2025
Slippurinn DNG verður á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll 10.–12. september.Við kynnum meðal annars DNG færavindur, Deep Trekker kafbáta og fjölbreytta þjónustu okkar.  Sérfræðingar okkar verða á staðnum til að ræða við gesti um: Færavindur DNG Skipaþjónustu Brunvoll skrúfur og framdrifskerfi Fiskvinnslubúnað DNG Útbúnað og þjónustu fyrir fiskeldisiðnaðinn …og margt fleira. Velkomin á bás B26!