25. febrúar 2026
Gamla færavindan sem greiðsla upp í nýja!

Varahlutaþjónustu við C6000 vindur hætt í áföngum

Árið 1995 hóf DNG framleiðslu C6000 færavindunnar sem óhætt er að segja að hafi verið byltingarkennd framþróun í handfæraveiðum á Íslandi og sú vinda síðan verið leiðandi veiðibúnaður í handfærabátum. Þó C6000 vindunni hafi í grunninn lítið verið breytt á þessum 30 árum þá hefur hún verið í stöðugri þróun en C6000 vindan er enn þann dag í dag algengasta handfæravinda í smábátaflotanum. Vegna framþróunar á heimsmarkaði í rafeinda- og hugbúnaði er svo komið að íhlutir í vinduna, svo sem skynjarar, skjáir og ýmis rafbúnaður eru ekki lengur framleiddir hjá birgjum DNG og ill- og ófáanlegir í heiminum. Af þessum sökum og að staðan versnaði verulega á meðan á Covid faraldrinum stóð var framleiðslu á nýjum C-6000 vindum hætt.

Í stað hennar hefur verið þróuð ný vinda, R1, sem nú er komin á markað og er enn fjölhæfari og öflugri en forveri hennar. Við þróun R1 vindunnar var lögð rík áhersla á keip hennar þannig að hún haldi fiskinum sem best á færinu. Óhætt er að segja að nýja R1 vindan sameina alla bestu eiginleika forvera sinna jafnframt því að byggja á nýjustu tækni og skila auknum afköstum við handfæraveiðar. 


Þjónustu við C6000 hætt í áföngum

Sem fyrr segir er nú orðið erfitt og í sumum tilfellum ómögulegt að fá nýja íhluti í C6000 vindurnar og mun þjónustu við þessa tegund færavinda hjá DNG verða hætt í áföngum á næstu tveimur árum. Frá 15. mars næstkomandi verður þjónustu hætt við vindur eldri en 2005, frá 1. janúar 2027 verður þjónustu hætt við vindur eldri en 2012 og frá 1. janúar 2028 verður þjónustu hætt við vindur eldri en 2020. 

Ármann Guðmundsson, þjónustustjóri DNG, segir þessar breytingar nauðsynlegar en að fyrirtækið hafi jafnframt tryggt að eiga helstu varahluti á lager til að unnt sé að fylgja framangreindri þjónustuáætlun við notendur. 

„Hér er um að ræða íhlutaframleiðslu sem er orðin áratuga gömul og eðlilega kemur að þeim tímapunkti að hún víki fyrir nýjungum. Við höfum því tekið okkur tíma til að undirbúa þessar breytingar fyrir okkar viðskiptavini vel og stærsta atriðið er að geta boðið okkar notendum nýju R1 vinduna í stað þeirrar gömlu,“ segir Ármann. 


Gamla vindan sem greiðsla upp í nýja

Nýja R1 vindan frá DNG hefur fengið mikið lof hjá smábátasjómönnum sem hafa notað hana. Vegna þeirra þjónustubreytinga sem nú verða við C6000 vinduna mun DNG taka gamlar vindur sem greiðslu upp í nýjar R1 vindur.

„Þetta er uppfærslutilboð að verðmæti um 100.000 kr. fyrir hverja vindu eldri en 2005 og nýrri vindur sem ekki er hægt að koma aftur í notkun. Þetta tilboðið er nú þegar orðið virkt hjá okkur og gildir til ársloka 2026,“ segir Daði Tryggvason, verkefnastjóri DNG. 

„Auk þess bjóðum við sérstaka ráðgjöf þar sem eigendur C6000 vinda geta komið með þær til okkar og við metum ástand hverrar vindu og ráðleggjum um viðgerð, yfirferð eða uppfærslu eftir því sem hagkvæmast er að gera. R1 vindan hefur reynst framúrskarandi vel hjá þeim smábátasjómönnum sem hafa tekið hana í notkun. Við vitum að við höfum því mjög góðan valkost að bjóða okkar viðskiptavinum.“


Aðrar fréttir

Eftir Hilmar Guðmundsson 11. mars 2026
Eina klassaða flotkví landsins
30. janúar 2026
Farþegaskip til sölu – IMO 9015175 (áður Arctic Circle) Slippurinn Akureyri kynnir nú til sölu farþegaskip sem hefur gengið í gegnum gagngerar endurbætur og hentar einstaklega vel til farþegaflutninga og hvalaskoðunar. • 150 farþegar (stækkanlegt í 200) • Hámarkshraði 26–28 hnútar • Fullbúið og tilbúið til reksturs strax • Afhending á Akureyri
Eftir Hilmar Guðmundsson 22. desember 2025
Slippurinn Akureyri sendir starfsfólki, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og heillaríkt komandi ár, með þökkum fyrir ánægjulega samvinnu á liðnu ári.
8. desember 2025
Síðastliðinn föstudag, 5. desember, bauð DNG færavindur smábátaeigendum á Norðurlandi í heimsókn í húsakynni fyrirtækisins á Akureyri. Viðburðurinn var skipulagður í samstarfi við Klett, félag smábátaeigenda á Norðurlandi eystra, og tókst afar vel. Aðsókn var mjög góð og var gestum fagnað með kynningu á framleiðslu, tækninýjungum og framtíðarþróun færavinda. Heimsóknargestir komu víða að af Norðurlandi og einnig frá systurfélögum bæði austan og vestan við Eyjafjörð. Sjómenn, bátseigendur og áhugafólk um tækni fengu tækifæri til að fylgjast með hvernig vindurnar eru smíðaðar, ræða við starfsfólk og skoða það sem er nýjast á markaðnum. Sérstök áhersla var lögð á DNG R1 vinduna sem hefur notið mikillar velgengni árið 2025. Gestir fengu að prófa vinduna, stilla hana og spyrja spurninga um virkni og eiginleika. R1 hefur slegið í gegn fyrir einstaklega gott fisknæmi, sem hefur gert hana að vinsælu vali meðal smábátaeigenda. Viðburðurinn reyndist afar árangursríkur og stefnt er að því að endurtaka hann. Þá vonumst við einnig til að geta staðið fyrir sambærilegum viðburðum í nánustu framtíð fyrir smábátafélög víðar um landið. Daði Tryggvason, verkefnastjóri DNG færavinda, var mjög ánægður með viðtökurnar: „Það er okkur alltaf ánægjulegt að fá sjómenn og bátseigendur til okkar. Umræður dagsins voru frábærar og við fengum bæði gagnlegar ábendingar og mikla hvatningu. Þetta samstarf er lykilatriði í áframhaldandi þróun vörunnar.“ Bjarni Reykjalín Magnússon, formaður Kletts, þakkaði fyrir góðar móttökur og lagði áherslu á mikilvægi þess að félagið geti boðið félagsmönnum sínum upp á svona fræðslu og kynningar. Hann sagði slíka viðburði efla tengsl milli framleiðenda og notenda og styðja við öfluga smábátaútgerð á svæðinu. Heimsóknin endaði á léttum veitingum og lifandi umræðum um vertíðina fram undan og framtíðarþróun í færabúnaði. Ljóst er að áhugi er mikill – og DNG færavindur heldur áfram að leiða veginn í nýsköpun fyrir íslenska sjómenn.
7. nóvember 2025
Í þriðja sinn í röð stendur Velferðarsjóður Eyjafjarðar fyrir sölu á Velferðarstjörnunni, í samstarfi við Glerártorg og Slippinn Akureyri. Nýtt útlit stjörnunnar fyrir jólin 2025 er hannað af Elvu Ýr Kristjánsdóttur og Kristínu Önnu Kristjánsdóttur, verkefnastjórum markaðsmála á Glerártorgi, og framleitt og styrkt af Slippnum Akureyri líkt og undanfarin ár.  Sala Velferðarstjörnunnar hefst laugardaginn 8. nóvember kl. 13 á Glerártorgi og er mikilvægur hluti af fjáröflun sjóðsins. Allir sem koma að verkefninu gefa vinnu sína og allur ágóði rennur óskiptur til efnaminni einstaklinga og fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu. Velferðarstjarnan verður í sölu fram að jólum hjá Lindex og Heimilistæki/Tölvulistinn/Kúnígúnd á Glerártorgi. „Velferðarstjarnan er fallegt og merkingarbært jólaskraut – tákn samstöðu og kærleika í aðdraganda jólanna,“ segir Guðný Jóna Þorsteinsdóttir, ráðgjafi sjóðsins. Áætlað er að ný hönnun stjörnunnar verði kynnt á hverju ári, sem eykur safngildi hennar fyrir þá sem safna henni ár frá ári. Um Velferðarsjóð Eyjafjarðar Velferðarsjóður Eyjafjarðar er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð, sem frá árinu 2013 hafa unnið saman að því að styðja einstaklinga og fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standa höllum fæti. Þörf fyrir aðstoð hefur aukist verulega á undanförnum árum. Um jólin 2024 bárust yfir 500 umsóknir, og svipaðs fjölda er að vænta í ár. „Okkur hefði ekki tekist þetta án velvilja Glerártorgs og starfsmanna Slippsins, sem leggja málefninu lið með ómetanlegu framlagi. Við hvetjum íbúa svæðisins til að kaupa stjörnuna og sýna þannig samstöðu og hlýju í aðdraganda jólanna,“ segir Kristín Björk Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Velferðarsjóðs Eyjafjarðar. Velferðarsjóðurinn starfar allt árið með það að markmiði að styðja efnaminni einstaklinga og fjölskyldur. Allur stuðningur fer óskiptur í kaup á gjafakortum í matvöruverslunum, sem afhent eru þeim sem þurfa á hjálp að halda. Þeir sem vilja leggja verkefninu lið geta sent tölvupóst á jolaadstod@gmail.com eða lagt inn á reikning 0302-26-003533 .
24. september 2025
Glæsilegi togarinn Guðmundur í Nesi við Slippinn Akureyri þar sem unnið er að reglubundnu viðhaldi.
12. september 2025
Ármann Guðmundsson, þjónustustjóri hjá DNG Færavindum, kynnir nýju DNG R1 færavinduna á bás fyrirtækisins í Laugardalshöll.
11. september 2025
Sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo 2025 stendur nú yfir í Laugardalshöll eftir að hafa verið sett í gær, og lýkur henni á morgun, föstudag. Slippurinn DNG er meðal þátttakenda og kynnir þar fjögur fyrirtækjasvið sín: Skipaþjónustu, DNG vinnslubúnað, DNG færavindur og Fiskeldi & iðnað. „Aðsókn á básinn okkar hefur verið mjög mikil,“ segir Hilmar Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Slippurinn DNG. „Þetta er frábær vettvangur til að ræða málin við bæði núverandi og framtíðar viðskiptavini.“ Hilmar bendir á að áskoranir og tækifæri í viðskiptaumhverfinu séu alltaf til staðar: „Þá er mikilvægt að leita leiða til að auka hagkvæmni í rekstrinum — og þar koma hinar ýmsu lausnir sem við hjá Slippurinn DNG vinnum að í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar,“ segir hann.  Sýningin hefur hlotið góðar viðtökur meðal fagaðila í sjávarútvegi og veitir fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna nýjungar og styrkja tengsl innan greinarinnar.
4. september 2025
Slippurinn DNG verður á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll 10.–12. september.Við kynnum meðal annars DNG færavindur, Deep Trekker kafbáta og fjölbreytta þjónustu okkar.  Sérfræðingar okkar verða á staðnum til að ræða við gesti um: Færavindur DNG Skipaþjónustu Brunvoll skrúfur og framdrifskerfi Fiskvinnslubúnað DNG Útbúnað og þjónustu fyrir fiskeldisiðnaðinn …og margt fleira. Velkomin á bás B26!
19. ágúst 2025
Glæsileg útfærsla listaverksins Sókn á Grenivík. Hönnuður: Sigríður Björg Haraldsdóttir, sem sést á myndinni. Slippurinn Akureyri kom að lokahönnun, efnisvali og undirbúningi smíðinnar. Mynd fengin að láni hjá Grenivík.is.