
Frá ICEFISH-sýningunni 2024
Slippurinn DNG tekur þátt í IceFish 2026, Íslensku sjávarútvegssýningunni, sem fer fram í Smáranum í Kópavogi dagana 22.–24. september. Við tökum á móti gestum á bás C42 ásamt systurfélagi okkar Optimar og samstarfsfyrirtækinu Brunvoll frá Noregi.
Á sýningunni kynnum við nýju DNG R1 tölvustýrðu færavindurnar og gefum gestum tækifæri til að kynnast virkni þeirra og notkun við færaveiðar. Okkar fólk verður á staðnum til að fara yfir búnaðinn, svara spurningum og ræða hvernig vindurnar geta nýst við ólíkar aðstæður til veiða.
Við kynnum einnig DNG fiskvinnslubúnað og ræðum lausnir fyrir vinnslu um borð í skipum og í landi. Þar verður áhersla á þarfir hverrar vinnslu og hvernig velja má búnað sem hentar hráefni, vinnslufyrirkomulagi og rekstri.
Þá kynnum við fjölbreytta skipaþjónustu Slippsins, sem hefur lengi verið í fararbroddi á sínu starfssvæði. Við tökum vel á móti gestum og ræðum allt frá búnaði til veiða og vinnslu yfir í viðhald, viðgerðir og endurbætur skipa.
Sérfræðingar Optimar verða á staðnum og kynna lausnir fyrir fiskeldi, vinnslu um borð í skipum og fiskvinnslu í landi. Gestum gefst tækifæri til að ræða þarfir sinnar starfsemi, fá ráðgjöf og skoða hvernig búnaður og þjónusta Optimar geta nýst í þeirra rekstri.
Brunvoll kynnir skrúfur og framdrifskerfi fyrir sjávarútveg og fiskeldi. Þetta norska fjölskyldufyrirtæki var stofnað árið 1912 og býr yfir víðtækri reynslu á sínu sviði. Slippurinn Akureyri er með einkaumboð á Íslandi fyrir vörur Brunvoll og veitir þjónustuaðstoð vegna þeirra.
IceFish er nú haldin í 15. sinn og byggir á vel heppnaðri sýningu árið 2024. Auk sýningarinnar verða á dagskrá ráðstefnur um málefni líðandi stundar, viðskiptafundir, nýsköpun og kynningar á nýjum vörum. Þá verða Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaunin afhent fyrir framúrskarandi árangur í greininni.
Við hlökkum til að hitta ykkur á bás C42 í Smáranum dagana 22.–24. september!
Aðrar fréttir









