Class Certification of Slippurinn Akureyri Floating Dock Renewed by Bureau Veritas
11. mars 2026
The Only Classed Floating Dock in Iceland

The class certification of the floating dock at Slippurinn Akureyri has been renewed by the international classification society Bureau Veritas. The renewal confirms that the dock continues to meet stringent requirements regarding safety, condition and operation.
The certification confirms that the floating dock is in good condition and provides safe service for vessels entering the dock. It also strengthens Slippurinn Akureyri’s capability to service a diverse fleet of vessels, including Icelandic-owned ships such as coast guard vessels, ferries and research vessels.
The renewal of the certification also increases the company’s opportunities to undertake projects for international clients, as certification from a recognized classification society is an important prerequisite for shipowners and operators when selecting facilities for maintenance and repair.
The floating dock at Slippurinn Akureyri is the only dock in Iceland with this certification. It reflects the high quality standards that the company maintains in its operations and the trust classification societies place in the professionalism of the work carried out there.

Klassavottun flotkvíar Slippins Akureyri frá alþjóðlega flokkunarfélaginu Bureau Veritas hefur verið endurnýjuð. Með endurnýjuninni er staðfest að kvíin uppfylli áfram strangar kröfur um öryggi, ástand og rekstur. Vottunin staðfestir að flotkvíin sé í góðu ástandi og tryggi örugga þjónustu fyrir skip sem tekin eru í kví. Hún styrkir jafnframt getu Slippins Akureyri til að þjónusta fjölbreyttan flota skipa, þar á meðal skip í eigu Íslendinga á borð við varðskip, ferjur og rannsóknarskip. Endurnýjun klassavottunarinnar eykur einnig möguleika fyrirtækisins á að taka að sér verkefni fyrir erlenda aðila, þar sem vottun frá viðurkenndu flokkunarfélagi er mikilvæg forsenda fyrir því að skipaeigendur og rekstraraðilar geti treyst aðstöðu til viðhalds og viðgerða. Flotkví Slippins Akureyri er eina flotkvíin á Íslandi með slíka vottun. Hún endurspeglar þann gæðastaðal sem fyrirtækið leggur áherslu á í starfsemi sinni og það traust sem flokkunarfélög bera til þeirrar fagmennsku sem þar fer fram.

Árið 1995 hóf DNG framleiðslu C6000 færavindunnar sem óhætt er að segja að hafi verið byltingarkennd framþróun í handfæraveiðum á Íslandi og sú vinda síðan verið leiðandi veiðibúnaður í handfærabátum. Þó C6000 vindunni hafi í grunninn lítið verið breytt á þessum 30 árum þá hefur hún verið í stöðugri þróun en C6000 vindan er enn þann dag í dag algengasta handfæravinda í smábátaflotanum. Vegna framþróunar á heimsmarkaði í rafeinda- og hugbúnaði er svo komið að íhlutir í vinduna, svo sem skynjarar, skjáir og ýmis rafbúnaður eru ekki lengur framleiddir hjá birgjum DNG og ill- og ófáanlegir í heiminum. Af þessum sökum og að staðan versnaði verulega á meðan á Covid faraldrinum stóð var framleiðslu á nýjum C-6000 vindum hætt. Í stað hennar hefur verið þróuð ný vinda, R1, sem nú er komin á markað og er enn fjölhæfari og öflugri en forveri hennar. Við þróun R1 vindunnar var lögð rík áhersla á keip hennar þannig að hún haldi fiskinum sem best á færinu. Óhætt er að segja að nýja R1 vindan sameina alla bestu eiginleika forvera sinna jafnframt því að byggja á nýjustu tækni og skila auknum afköstum við handfæraveiðar. Þjónustu við C6000 hætt í áföngum Sem fyrr segir er nú orðið erfitt og í sumum tilfellum ómögulegt að fá nýja íhluti í C6000 vindurnar og mun þjónustu við þessa tegund færavinda hjá DNG verða hætt í áföngum á næstu tveimur árum. Frá 15. mars næstkomandi verður þjónustu hætt við vindur eldri en 2005, frá 1. janúar 2027 verður þjónustu hætt við vindur eldri en 2012 og frá 1. janúar 2028 verður þjónustu hætt við vindur eldri en 2020. Ármann Guðmundsson, þjónustustjóri DNG, segir þessar breytingar nauðsynlegar en að fyrirtækið hafi jafnframt tryggt að eiga helstu varahluti á lager til að unnt sé að fylgja framangreindri þjónustuáætlun við notendur. „Hér er um að ræða íhlutaframleiðslu sem er orðin áratuga gömul og eðlilega kemur að þeim tímapunkti að hún víki fyrir nýjungum. Við höfum því tekið okkur tíma til að undirbúa þessar breytingar fyrir okkar viðskiptavini vel og stærsta atriðið er að geta boðið okkar notendum nýju R1 vinduna í stað þeirrar gömlu,“ segir Ármann. Gamla vindan sem greiðsla upp í nýja Nýja R1 vindan frá DNG hefur fengið mikið lof hjá smábátasjómönnum sem hafa notað hana. Vegna þeirra þjónustubreytinga sem nú verða við C6000 vinduna mun DNG taka gamlar vindur sem greiðslu upp í nýjar R1 vindur. „Þetta er uppfærslutilboð að verðmæti um 100.000 kr. fyrir hverja vindu eldri en 2005 og nýrri vindur sem ekki er hægt að koma aftur í notkun. Þetta tilboðið er nú þegar orðið virkt hjá okkur og gildir til ársloka 2026,“ segir Daði Tryggvason, verkefnastjóri DNG. „Auk þess bjóðum við sérstaka ráðgjöf þar sem eigendur C6000 vinda geta komið með þær til okkar og við metum ástand hverrar vindu og ráðleggjum um viðgerð, yfirferð eða uppfærslu eftir því sem hagkvæmast er að gera. R1 vindan hefur reynst framúrskarandi vel hjá þeim smábátasjómönnum sem hafa tekið hana í notkun. Við vitum að við höfum því mjög góðan valkost að bjóða okkar viðskiptavinum.“

Farþegaskip til sölu – IMO 9015175 (áður Arctic Circle) Slippurinn Akureyri kynnir nú til sölu farþegaskip sem hefur gengið í gegnum gagngerar endurbætur og hentar einstaklega vel til farþegaflutninga og hvalaskoðunar. • 150 farþegar (stækkanlegt í 200) • Hámarkshraði 26–28 hnútar • Fullbúið og tilbúið til reksturs strax • Afhending á Akureyri
Last Friday, 5 December, DNG Jigging Reels welcomed small-boat owners from North Iceland to an open house at the company’s facilities in Akureyri. The event was organised in cooperation with Klettur, the association of small-boat owners in Northeast Iceland, and was very successful. Attendance was strong, and guests were greeted with presentations on the production process, technical innovations and future development of the jigging reels. Visitors came from across North Iceland, as well as from sister associations both east and west of Eyjafjörður. Fishermen, boat owners and technology enthusiasts had the opportunity to see how the reels are built, talk with staff and explore the latest equipment available on the market. A key focus of the event was the DNG R1 reel, which has enjoyed significant success in 2025. Guests were able to test the reel, try different settings and ask questions about its functions and performance. The R1 has become a popular choice among small-boat fishermen due to its exceptional fish-sensing ability, which has played a major role in its strong reception. The event proved highly effective, and plans are already underway to repeat it. There is also hope to host similar events for small-boat organisations in other regions of Iceland in the near future. Daði Tryggvason, project manager at DNG Jigging Reels, was very pleased with the response: “It is always a pleasure to welcome fishermen and boat owners to our facility. The discussions were excellent, and we received many useful comments and valuable encouragement. This kind of dialogue is essential for the continued development of our products.” Bjarni Reykjalín Magnússon, chairman of Klettur, expressed his appreciation for the warm reception and emphasised the importance of offering members opportunities for this type of learning and engagement. He noted that such events strengthen ties between manufacturers and users and support a robust small-boat fishing sector in the region. The visit concluded with light refreshments and lively discussions about the upcoming fishing season and the future of jigging-gear technology. Interest was high, and it is clear that innovation and reliable equipment remain vital to Icelandic fishermen — and DNG intends to stay at the forefront.



