Heimsókn nemenda í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri
16. október 2024
Heimsókn nemenda í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri!

Í dag fengum við góðan hóp nema í Sjávarútvegsfræði úr Háskólanum á Akureyri í heimsókn! Við byrjuðum á kaffi og kleinum, og héldum svo áfram með kynningu á starfsemi fyrirtækisins og vettvangsferð um vinnusvæðið. Sjávarútvegsfræði við HA er þverfaglegt nám sem hefur verið kennt síðan 1990, og margir útskrifaðir nemar hafa náð langt í greininni, bæði hér heima og erlendis.
Það var einstaklega ánægjulegt að fá þennan hóp í heimsókn og sjá eldmóðinn og áhugann – framtíðin lítur svo sannarlega vel út með svona hæfileikafólk á leiðinni inn í greinina!

Sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo 2025 stendur nú yfir í Laugardalshöll eftir að hafa verið sett í gær, og lýkur henni á morgun, föstudag. Slippurinn DNG er meðal þátttakenda og kynnir þar fjögur fyrirtækjasvið sín: Skipaþjónustu, DNG vinnslubúnað, DNG færavindur og Fiskeldi & iðnað. „Aðsókn á básinn okkar hefur verið mjög mikil,“ segir Hilmar Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Slippurinn DNG. „Þetta er frábær vettvangur til að ræða málin við bæði núverandi og framtíðar viðskiptavini.“ Hilmar bendir á að áskoranir og tækifæri í viðskiptaumhverfinu séu alltaf til staðar: „Þá er mikilvægt að leita leiða til að auka hagkvæmni í rekstrinum — og þar koma hinar ýmsu lausnir sem við hjá Slippurinn DNG vinnum að í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar,“ segir hann. Sýningin hefur hlotið góðar viðtökur meðal fagaðila í sjávarútvegi og veitir fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna nýjungar og styrkja tengsl innan greinarinnar.

Slippurinn DNG verður á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll 10.–12. september. Við kynnum meðal annars DNG færavindur, Deep Trekker kafbáta og fjölbreytta þjónustu okkar. Sérfræðingar okkar verða á staðnum til að ræða við gesti um: Færavindur DNG Skipaþjónustu Brunvoll skrúfur og framdrifskerfi Fiskvinnslubúnað DNG Útbúnað og þjónustu fyrir fiskeldisiðnaðinn …og margt fleira. Velkomin á bás B26!