Leita stöðugt nýrra lausna fyrir viðskiptavini
Sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo 2025 stendur nú yfir í Laugardalshöll eftir að hafa verið sett í gær, og lýkur henni á morgun, föstudag.
Slippurinn DNG er meðal þátttakenda og kynnir þar fjögur fyrirtækjasvið sín: Skipaþjónustu, DNG vinnslubúnað, DNG færavindur og Fiskeldi & iðnað. „Aðsókn á básinn okkar hefur verið mjög mikil,“ segir Hilmar Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Slippurinn DNG. „Þetta er frábær vettvangur til að ræða málin við bæði núverandi og framtíðar viðskiptavini.“
Hilmar bendir á að áskoranir og tækifæri í viðskiptaumhverfinu séu alltaf til staðar: „Þá er mikilvægt að leita leiða til að auka hagkvæmni í rekstrinum — og þar koma hinar ýmsu lausnir sem við hjá Slippurinn DNG vinnum að í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar,“ segir hann.
Sýningin hefur hlotið góðar viðtökur meðal fagaðila í sjávarútvegi og veitir fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna nýjungar og styrkja tengsl innan greinarinnar.
Aðrar fréttir









