Nýja DNG R1 færavindan vekur mikla athygli í Laugardalshöll
Mikil aðsókn á bás Slippsins DNG í Laugardalshöll

Ármann Guðmundsson, þjónustustjóri hjá DNG Færavindum, kynnir nýju DNG R1 færavinduna
á bás fyrirtækisins í Laugardalshöll.
Sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo 2025 stendur nú yfir í Laugardalshöll og hefur aðsókn verið framar björtustu vonum á sýningarbás Slippins DNG. Sýningin var opnuð í fyrradag og lýkur henni síðar í dag, föstudag.
Á básnum kynnir Slippurinn DNG fjölbreytta þjónustu og vörur frá fjórum sviðum sínum: Skipaþjónustu, DNG Vinnslubúnað, DNG Færavindur og Fiskeldi & Iðnað. Gestir hafa sýnt mikinn áhuga á lausnum fyrirtækisins.
Einn af hápunktum sýningarinnar er nýja DNG R1 færavindan, sem hefur vakið gríðarlega mikla athygli gesta.
„Aðsóknin er framar björtustu vonum okkar. Nýja DNG R1 færavindan hefur fengið einstaklega jákvæðar viðtökur og við höfum þegar selt fjölda vinda hér á sýningunni,“ segir Daði Tryggvason, verkefnastjóri hjá DNG Færavindum.
„Í ár hefur verið algjör sprenging í sölu á R1 færavindum og það er ljóst að salan mun rúmlega tvöfaldast miðað við fyrri ár.“
Sýningin hefur dregið að sér fjölda gesta úr sjávarútvegi og skyldum greinum og er mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki til að kynna nýjungar og tækni fyrir sjávarútveginn. Ljóst er að áhugi fagfólks er mikill á þeim lausnum sem Slippurinn DNG og aðrir sýnendur kynna á sýningunni.
Sýningin stendur yfir til loka dags í dag og eru allir áhugasamir hvattir til að kíkja við og kynna sér það nýjasta í sjávarútvegstækni.


