Ókeypis hugbúnaðaruppfærsla og yfirferð fyrir DNG R1 færavindur
18. desember 2024
Endurbætur sem bæta notendaupplifun og áreiðanleika.

Um daginn auglýstum við sérstakt tilboð fyrir allar DNG R1 færavindur keyptar árið 2022 eða síðar. Eigendur þessara færavinda geta fengið hugbúnaðaruppfærslu og yfirferð án endurgjalds.
Uppfærslan inniheldur umfangsmiklar endurbætur sem bæta notendaupplifun og áreiðanleika. Viðbrögðin hafa verið frábær, og nú þegar hafa margir nýtt sér þetta tækifæri. Stór hluti þessara færavinda er þegar kominn í þjónustuferlið hjá okkur, þar sem hugbúnaður er uppfærður og tækin yfirfarin af fagfólki.
Þetta boð gildir fram á næsta ár, nánar tiltekið til 15. apríl 2024. Við hvetjum alla eigendur R1 færavinda til að nýta sér þessa þjónustu. Hér að neðan má sjá mynd af færavindum í þjónustuferlinu okkar.

We welcome Daði Tryggvason to our team as the new Project Manager and Head of DNG Jigging Reels. Daði brings extensive and practical experience from both the fishing industry and public administration, which will serve him well in this new role. He holds a BSc degree in Fisheries Science from the University of Akureyri and has worked for over two decades on a wide range of projects within the sector. This includes many years at sea, both on trawlers and jigging boats equipped with DNG jigging reels. First-hand user experience with the company’s equipment is invaluable — particularly when it comes to product development and customer service. In addition to his time at sea, Daði has worked in aquaculture and most recently as a fisheries specialist at the Directorate of Fisheries, where he was responsible for quota allocations, licensing (including ICCAT and CITES), and customer relations. We look forward to the collaboration and are confident that Daði’s experience and insight will support the continued development of DNG Jigging Reels. https://www.slippurinndng.is/faeravindur

Við bjóðum Daða Tryggvason velkominn til liðs við okkur sem nýjan verkefnastjóra og yfirmann DNG Færavinda. Daði kemur með víðtæka og hagnýta reynslu úr sjávarútvegi og opinberri stjórnsýslu, sem mun nýtast vel í hans nýja hlutverki. Hann er með BSc gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri og hefur starfað í yfir tvo áratugi við fjölbreytt verkefni innan greinarinnar. Þar á meðal má nefna áralanga sjómennsku bæði á togurum og handfærabátum, sem voru búnir færavindum frá DNG. Sú þekking sem fylgir beinni notendareynslu af búnaði fyrirtækisins er dýrmæt, sérstaklega þegar kemur að vöruþróun og þjónustu við viðskiptavini. Auk þess hefur Daði starfað í fiskeldi og síðast sem sérfræðingur í fiskveiðum hjá Fiskistofu, þar sem hann sinnti meðal annars úthlutun kvóta, leyfisveitingum (þar á meðal ICCAT og CITES) og viðskiptatengslum. Við hlökkum til samstarfsins og trúum því að reynsla og innsýn Daða styrki áframhaldandi þróun DNG Færavinda. https://www.slippurinndng.is/faeravindur