15. ágúst 2025
Slippurinn Akureyri kynnir Deep Trekker – kafbáta fyrir fiskeldi

Aukið öryggi og sparnaður í rekstri

Fjarstýrðir kafbátar fyrir fiskeldi 

Slippurinn Akureyri er með umboð fyrir  Deep Trekker, kanadískaneðansjávar­dróna – eða fjarstýrða kafbáta, eins og við köllum þá. Við höfum kynnt búnaðinn á vörusýningum undanfarin ár og fengið frábærar viðtökur. Nokkrir aðilar hafa þegar fjárfest í þessum lausnum og hefur notagildið sannað sig með glæsilegum árangri.


Valdemar Karl Kristinsson, verkefnastjóri hjá Slippnum Akureyri, segir að Deep Trekker stuðli að auknu öryggi og hagkvæmni í rekstri fiskeldisfyrirtækja:

„Með Deep Trekker kafbátum færðu fullkomið yfirlit yfir ástand neta og festinga án þess að þurfa að senda kafara niður. Þú sérð strax hvað þarf að laga eða viðhalda, sem sparar bæði tíma og kostnað og eykur öryggi.“

Net Patch Kit – einfaldar viðgerðir undir vatni

Eitt af þeim verkfærum sem eykur þetta öryggi og skilvirkni er Net Patch Kit. Það festist ofan og neðan á Deep Trekker kafbát og heldur netbótinni með örmum framan við bátinn. Mótorinn að neðan tengist við gripbúnaðinn, og með stýringu á neðri arminum er hægt að minnka spennu í netinu til að staðsetja möskvann rétt og síðan losa til að skilja bótina eftir á sínum stað. Slippurinn Akureyri sér um að útvega festingar og uppsetningarbúnað, en viðskiptavinurinn útvegar sjálfur netið svo hægt sé að samræma efnið við það sem þegar er notað í kví fyrirtækisins.
Sjá nánar í myndbandi hér að neðan.


Fiskeldi undir stjórn – nákvæm skoðun, hreinsun og vöktun
Með kafbát frá Deep Trekker er hægt að framkvæma reglulegar og nákvæmar skoðanir á netum og tryggja að festingar séu öruggar og þar með tryggja burðarþol og öryggi mannvirkja. Þetta er sérstaklega mikilvægt við uppsetningu nýrra kvía og til að uppfylla kröfur eftirlitsaðila.
Með kafbát geturðu tekið stjórn á netaskoðunum, aukið skilvirkni í hreinsun og fylgst með slit- eða skemmdarhættu sem gæti leitt til slysasleppinga. Reglulegar skoðanir á kvíum og netum, ásamt vöktun á fiskiheilbrigði og fóðrun, ættu að vera hluti af daglegum rekstri.
Með lausnum Deep Trekker er hægt að fá rauntímamynd frá neðansjávarmyndavélum, fylgjast með fóðrun, meta ástand stofnsins og greina hegðun fisksins. Þetta sparar bæði tíma og fjármuni.


Hér fyrir neðan eru ítarleg og áhugaverð myndbönd sem sýna notkun og virkni Deep Trekker við raunverulegar aðstæður.

Frekari upplýsingar veitir:
Valdemar Karl Kristinsson
valdemar@slipp.is


Slippurinn Akureyri verður með Deep Trekker til sýnis á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll,dagana 10.–12. september, á bás númer B-26.

MYNDBAND: Deep Trekker fjarstýrður kafbátur við vinnu – eykur öryggi og sparar tíma í fiskeldi:

Athugið: Veljið táknið fyrir full screen til að fá myndina á allan skjáinn (táknið er neðst til hægri, vinstra megin við Vimeo-merkið).

MYNDBAND: Net Patch Kit í notkun – einfaldar og hraðar viðgerðir á netum undir vatni:

Athugið: Veljið táknið fyrir full screen til að fá myndina á allan skjáinn (táknið er neðst til hægri, vinstra megin við Vimeo-merkið).

Myndirnar hér að neðan sýna Deep Trekker við vinnu í raunverulegum aðstæðum á fiskeldistöð:

Aðrar fréttir

Eftir Hilmar Guðmundsson • 18. september 2026
Slippurinn Akureyri og DNG verða meðal þátttakenda á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni, ICEFISH 2026, dagana 22.–24. september. Við bjóðum viðskiptavini, samstarfsaðila og aðra gesti hjartanlega velkomna á bás C42. Á básnum verða fulltrúar okkar í vinnslubúnaði, skipaþjónustu og færavindum. Gestum gefst tækifæri til að kynna sér þjónustu okkar og búnað, ræða eigin verkefni og skoða möguleika á samstarfi. ICEFISH er góður vettvangur til að hittast, skiptast á hugmyndum og ræða nýjungar sem geta stuðlað að frekari vexti og verðmætasköpun í sjávarútvegi og fiskeldi.  Við hlökkum til samtalsins og þeirra tækifæra sem það getur leitt af sér. Líttu við á bás C42. Við bjóðum upp á kaffi og góðar veitingar og tökum vel á móti þér!
Eftir Hilmar Guðmundsson • 10. september 2026
Slippurinn DNG tekur þátt í IceFish 2026, Íslensku sjávarútvegssýningunni, sem fer fram í Smáranum í Kópavogi dagana 22.–24. september. Við tökum á móti gestum á bás C42 ásamt systurfélagi okkar Optimar og samstarfsfyrirtækinu Brunvoll frá Noregi. Á sýningunni kynnum við nýju DNG R1 tölvustýrðu færavindurnar og gefum gestum tækifæri til að kynnast virkni þeirra og notkun við færaveiðar. Okkar fólk verður á staðnum til að fara yfir búnaðinn, svara spurningum og ræða hvernig vindurnar geta nýst við ólíkar aðstæður til veiða. Við kynnum einnig DNG fiskvinnslubúnað og ræðum lausnir fyrir vinnslu um borð í skipum og í landi. Þar verður áhersla á þarfir hverrar vinnslu og hvernig velja má búnað sem hentar hráefni, vinnslufyrirkomulagi og rekstri. Þá kynnum við fjölbreytta skipaþjónustu Slippsins , sem hefur lengi verið í fararbroddi á sínu starfssvæði. Við tökum vel á móti gestum og ræðum allt frá búnaði til veiða og vinnslu yfir í viðhald, viðgerðir og endurbætur skipa. Sérfræðingar Optimar verða á staðnum og kynna lausnir fyrir fiskeldi, vinnslu um borð í skipum og fiskvinnslu í landi. Gestum gefst tækifæri til að ræða þarfir sinnar starfsemi, fá ráðgjöf og skoða hvernig búnaður og þjónusta Optimar geta nýst í þeirra rekstri. Brunvoll kynnir skrúfur og framdrifskerfi fyrir sjávarútveg og fiskeldi. Þetta norska fjölskyldufyrirtæki var stofnað árið 1912 og býr yfir víðtækri reynslu á sínu sviði. Slippurinn Akureyri er með einkaumboð á Íslandi fyrir vörur Brunvoll og veitir þjónustuaðstoð vegna þeirra. IceFish er nú haldin í 15. sinn og byggir á vel heppnaðri sýningu árið 2024. Auk sýningarinnar verða á dagskrá ráðstefnur um málefni líðandi stundar, viðskiptafundir, nýsköpun og kynningar á nýjum vörum. Þá verða Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaunin afhent fyrir framúrskarandi árangur í greininni. Við hlökkum til að hitta ykkur á bás C42 í Smáranum dagana 22.–24. september!
22. apríl 2026
Mikill áhugi á lausnum Slippsins DNG
21. apríl 2026
Samningur við kanadíska útgerð
12. apríl 2026
Lausnir fyrir skip og vinnslu
Sverrir Mjófjörð Gunnarsson trillusjómaður við eina af nýju R1 færavindunum frá DNG um borð á Ásdísi
31. mars 2026
Sverrir Gunnarsson, trillusjómaður í Ólafsfirði, segir nýju R1 færavindurnar frá DNG hafa reynst vel og einfaldað vinnuna um borð á Ásdísi ÓF.
Eftir Hilmar Guðmundsson • 11. mars 2026
Eina klassaða flotkví landsins
25. febrúar 2026
Gamla færavindan sem greiðsla upp í nýja!
30. janúar 2026
Farþegaskip til sölu – IMO 9015175 (áður Arctic Circle) Slippurinn Akureyri kynnir nú til sölu farþegaskip sem hefur gengið í gegnum gagngerar endurbætur og hentar einstaklega vel til farþegaflutninga og hvalaskoðunar. • 150 farþegar (stækkanlegt í 200) • Hámarkshraði 26–28 hnútar • Fullbúið og tilbúið til reksturs strax • Afhending á Akureyri
Eftir Hilmar Guðmundsson • 22. desember 2025
Slippurinn Akureyri sendir starfsfólki, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og heillaríkt komandi ár, með þökkum fyrir ánægjulega samvinnu á liðnu ári.