7. nóvember 2025
Velferðarstjarnan 2025 – Velferð er verkefni okkar allra

Slippurinn Akureyri styrkir verkefnið – stjarnan táknar samstöðu og kærleika

Í þriðja sinn í röð stendur Velferðarsjóður Eyjafjarðar fyrir sölu á Velferðarstjörnunni, í samstarfi við Glerártorg og Slippinn Akureyri. Nýtt útlit stjörnunnar fyrir jólin 2025 er hannað af Elvu Ýr Kristjánsdóttur og Kristínu Önnu Kristjánsdóttur, verkefnastjórum markaðsmála á Glerártorgi, og framleitt og styrkt af Slippnum Akureyri líkt og undanfarin ár.




Sala Velferðarstjörnunnar hefst laugardaginn 8. nóvember kl. 13 á Glerártorgi og er mikilvægur hluti af fjáröflun sjóðsins.

Allir sem koma að verkefninu gefa vinnu sína og allur ágóði rennur óskiptur til efnaminni einstaklinga og fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu.


Velferðarstjarnan verður í sölu fram að jólum hjá Lindex og Heimilistæki/Tölvulistinn/Kúnígúnd á Glerártorgi.


„Velferðarstjarnan er fallegt og merkingarbært jólaskraut – tákn samstöðu og kærleika í aðdraganda jólanna,“ segir Guðný Jóna Þorsteinsdóttir, ráðgjafi sjóðsins.


Áætlað er að ný hönnun stjörnunnar verði kynnt á hverju ári, sem eykur safngildi hennar fyrir þá sem safna henni ár frá ári.


Um Velferðarsjóð Eyjafjarðar


Velferðarsjóður Eyjafjarðar er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð, sem frá árinu 2013 hafa unnið saman að því að styðja einstaklinga og fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standa höllum fæti.


Þörf fyrir aðstoð hefur aukist verulega á undanförnum árum. Um jólin 2024 bárust yfir 500 umsóknir, og svipaðs fjölda er að vænta í ár.


„Okkur hefði ekki tekist þetta án velvilja Glerártorgs og starfsmanna Slippsins, sem leggja málefninu lið með ómetanlegu framlagi. Við hvetjum íbúa svæðisins til að kaupa stjörnuna og sýna þannig samstöðu og hlýju í aðdraganda jólanna,“ segir Kristín Björk Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Velferðarsjóðs Eyjafjarðar.


Velferðarsjóðurinn starfar allt árið með það að markmiði að styðja efnaminni einstaklinga og fjölskyldur. Allur stuðningur fer óskiptur í kaup á gjafakortum í matvöruverslunum, sem afhent eru þeim sem þurfa á hjálp að halda.


Þeir sem vilja leggja verkefninu lið geta sent tölvupóst á jolaadstod@gmail.com  eða lagt inn á reikning 0302-26-003533.

Aðrar fréttir

Eftir Hilmar Guðmundsson • 18. september 2026
Slippurinn Akureyri og DNG verða meðal þátttakenda á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni, ICEFISH 2026, dagana 22.–24. september. Við bjóðum viðskiptavini, samstarfsaðila og aðra gesti hjartanlega velkomna á bás C42. Á básnum verða fulltrúar okkar í vinnslubúnaði, skipaþjónustu og færavindum. Gestum gefst tækifæri til að kynna sér þjónustu okkar og búnað, ræða eigin verkefni og skoða möguleika á samstarfi. ICEFISH er góður vettvangur til að hittast, skiptast á hugmyndum og ræða nýjungar sem geta stuðlað að frekari vexti og verðmætasköpun í sjávarútvegi og fiskeldi.  Við hlökkum til samtalsins og þeirra tækifæra sem það getur leitt af sér. Líttu við á bás C42. Við bjóðum upp á kaffi og góðar veitingar og tökum vel á móti þér!
Eftir Hilmar Guðmundsson • 10. september 2026
Slippurinn DNG tekur þátt í IceFish 2026, Íslensku sjávarútvegssýningunni, sem fer fram í Smáranum í Kópavogi dagana 22.–24. september. Við tökum á móti gestum á bás C42 ásamt systurfélagi okkar Optimar og samstarfsfyrirtækinu Brunvoll frá Noregi. Á sýningunni kynnum við nýju DNG R1 tölvustýrðu færavindurnar og gefum gestum tækifæri til að kynnast virkni þeirra og notkun við færaveiðar. Okkar fólk verður á staðnum til að fara yfir búnaðinn, svara spurningum og ræða hvernig vindurnar geta nýst við ólíkar aðstæður til veiða. Við kynnum einnig DNG fiskvinnslubúnað og ræðum lausnir fyrir vinnslu um borð í skipum og í landi. Þar verður áhersla á þarfir hverrar vinnslu og hvernig velja má búnað sem hentar hráefni, vinnslufyrirkomulagi og rekstri. Þá kynnum við fjölbreytta skipaþjónustu Slippsins , sem hefur lengi verið í fararbroddi á sínu starfssvæði. Við tökum vel á móti gestum og ræðum allt frá búnaði til veiða og vinnslu yfir í viðhald, viðgerðir og endurbætur skipa. Sérfræðingar Optimar verða á staðnum og kynna lausnir fyrir fiskeldi, vinnslu um borð í skipum og fiskvinnslu í landi. Gestum gefst tækifæri til að ræða þarfir sinnar starfsemi, fá ráðgjöf og skoða hvernig búnaður og þjónusta Optimar geta nýst í þeirra rekstri. Brunvoll kynnir skrúfur og framdrifskerfi fyrir sjávarútveg og fiskeldi. Þetta norska fjölskyldufyrirtæki var stofnað árið 1912 og býr yfir víðtækri reynslu á sínu sviði. Slippurinn Akureyri er með einkaumboð á Íslandi fyrir vörur Brunvoll og veitir þjónustuaðstoð vegna þeirra. IceFish er nú haldin í 15. sinn og byggir á vel heppnaðri sýningu árið 2024. Auk sýningarinnar verða á dagskrá ráðstefnur um málefni líðandi stundar, viðskiptafundir, nýsköpun og kynningar á nýjum vörum. Þá verða Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaunin afhent fyrir framúrskarandi árangur í greininni. Við hlökkum til að hitta ykkur á bás C42 í Smáranum dagana 22.–24. september!
22. apríl 2026
Mikill áhugi á lausnum Slippsins DNG
21. apríl 2026
Samningur við kanadíska útgerð
12. apríl 2026
Lausnir fyrir skip og vinnslu
Sverrir Mjófjörð Gunnarsson trillusjómaður við eina af nýju R1 færavindunum frá DNG um borð á Ásdísi
31. mars 2026
Sverrir Gunnarsson, trillusjómaður í Ólafsfirði, segir nýju R1 færavindurnar frá DNG hafa reynst vel og einfaldað vinnuna um borð á Ásdísi ÓF.
Eftir Hilmar Guðmundsson • 11. mars 2026
Eina klassaða flotkví landsins
25. febrúar 2026
Gamla færavindan sem greiðsla upp í nýja!
30. janúar 2026
Farþegaskip til sölu – IMO 9015175 (áður Arctic Circle) Slippurinn Akureyri kynnir nú til sölu farþegaskip sem hefur gengið í gegnum gagngerar endurbætur og hentar einstaklega vel til farþegaflutninga og hvalaskoðunar. • 150 farþegar (stækkanlegt í 200) • Hámarkshraði 26–28 hnútar • Fullbúið og tilbúið til reksturs strax • Afhending á Akureyri
Eftir Hilmar Guðmundsson • 22. desember 2025
Slippurinn Akureyri sendir starfsfólki, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og heillaríkt komandi ár, með þökkum fyrir ánægjulega samvinnu á liðnu ári.